top of page

Velkominn á heimsíðu lærakeyra.is

Jóhann Hilmar Haraldsson, ökukennari:

Ég er staðsettur á Höfn í Hornafirði en starfa talsvert með nemendum að Djúpavogi til austurs og að Kirkjubæjarklaustri til vesturs. Hafðu samband og við finnum lausnir. 

Ég kenni á sjálfskiptan og beinskiptan bíl og býð upp á:

Kennslu í B-réttindum:

Eru almenn ökuréttindi og nemandi getur byrjað námið á 16 ára afmælinu.

​​​​​

Akstursmat / Fullnaðarskírteini:

Er hluti af B-réttinda ferlinu. Til þess að ökumaður fái fullnaðarskírteini, eftir að hafa fengið bráðabirgðaskírteini, þarf viðkomandi að hafa verið punktalaus í 12 mánuði. Þá getur nemandi haft samband við ökukennara, klárað akstursmat og því næst sótt um fullnaðarskírteini. 

​

Kennslu í BE-réttindum / Kerrupróf:

Þeir sem tóku almenn ökuréttindi fyrir 15.ágúst 1997, fengu B og BE réttindi í sitt ökuskírteini. Þeir sem tóku almenn ökuréttindi eftir 15.ágúst 1997, fengu einungis B réttindi. Árið 1997 var 1980 árgangurinn að fá bílpróf og er það sturluð staðreynd að sumir í þeim árgangi fengu BE réttindi og aðrir ekki. ​Til þess að öðlast BE réttindi, þarft þú að sækja fjóra verklega tíma hjá ökukennara, taka munnlegt og verklegt próf. 
 

Ráðgjöf eða fræðslu í umferðarmálum: 

Þetta gæti hentað öllum skólastigum, fyrirtækjum og sveitarfélögum. Fræðslan og eða ráðgjöfin gæti verið í formi fyrirlestra, verklegrar fræðslu og æfinga. Einnig úttekt svæða er varðar umferðamerkingar og - öryggi, ásamt því að koma með tillögur að úrbótum. ​

​​​

Sími: 855 0580

  • White Facebook Icon

læarakeyra á facebook

johannhilmar@lærakeyra.is

bottom of page