B-Réttindaferlið
Útskýringar er einföldun á ferlinu en námið er einstaklingsmiðað.
Kostnaður ökunáms er u.þ.b 330.000 kr. +/-
Þetta er kostnaður sem deilist oftast niður á eitt ár. Inn í þessum kostnaði eru ökutímar, gjöld til sýslumanns, prófgjöld og kostnaður við ökuskóla.
Tímalengd á kennslutíma er 50 til 60 mínútur.
Kennslutími kostar 15.500 kr.

1. Startið. Engin ástæða til að hafa áhyggjur. Allir eru byrjendur einhvern tímann.
Ef þú ert orðinn 16 ára og hefur verið með skráð lögheimili á Íslandi síðastliðna sex mánuði, getur þú byrjað ökunám. Þú sækir um námsheimild hjá sýslumanni og ferð svo seinna til sýslumanns með þá passamynd sem þú vilt hafa í ökuskírteininu. Þar kvittar þú líka nafnið þitt í þar til gerðan kassa sem mun verða undirskrift þín á ökuskírteininu. Samhliða þessu ferli, setur þú þig í samband við mig og við ákveðum fyrsta hitting og næstu skref.
2. Fyrri hálfleikur. Fyrsta markmið er að komast í æfingaakstur með reyndum ökumönnum.
Við byrjum verklega kennslu og þú byrjar í ökuskóla númer eitt á netinu og við keyrum kennslutíma samhliða lotum sem þú gerir í ökuskóla eitt. Það þarf að keyra að lágmarki 10 kennslutíma og klára ökuskóla númer eitt til þess að komast í æfingaakstur. Ökukennari gefur heimild um æfingaakstur þegar nemandinn er talinn tilbúinn.
3. Foreldra-, vina- og fjölskyldusamvera. Æfingaakstur.
Tíminn sem nemendur eru í æfingaakstri og þá jafnvel ekki í verklegum ökutímum, er mislangur. Fer eftir afmælisdegi eða hvenær nemandi, stefnir á að klára námið. Einnig hvort nemandi hafi klárað ökuskóla tvö á netinu og ökuskóla þrjú sem er staðbundinn á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu tímabili er gott að klára ökuskóla númer tvö og þrjú.
4. Seinni hálfleikur. Við siglum sigrinum heim.
Nemandi má fara í bóklegt próf þegar tveir mánuðir eru í 17 ára afmælið. Þegar tveir mánuðir eru í 17 ára afmælið, stefnum við á að ökuskóli númer 1, 2 og 3 séu búnir, ásamt því að klára að lámarki 14 ökutíma. Því næst er lokaundirbúningur fyrir verklegt próf en nemandi má fara í verklegt ökupróf þegar tvær vikur eru í 17 ára afmælið.

