Ég útskrifaðist sem ökukennari árið 2017 og hef starfað sem slíkur síðan. Þá hef ég einnig komið að kennslu á framhaldskólastigi er varðar undirbúning fyrir ökunám.
Ég starfa líka sem varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi en ég hef sinnt ýmsum störfum innan lögreglu frá árinu 2001, til dagsins í dag.
Fyrir löggu- og ökukennaralífið starfaði ég sem sjómaður og rútubílstjóri, ásamt því að klára iðnnám.
Ég og kona mín eigum fimm börn sem við eignuðumst á níu árum og eru þau öll erfiðustu nemendurnir mínir til þessa dags :)