top of page

Aðeins um BE - Réttindi

Til þess að öðlast BE réttindi, þarft þú að sækja fjóra verklega ökutíma hjá ökukennara (4x45 mín). Því næst taka munnlegt og verklegt próf hjá Frumherja. 

BE réttindi veita rétt til að stjórna bifreið í B flokki með eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 3.500 kg af leyfðri heildarþyngd. Samtals má bifreið og eftirvagn (vagnlest) vera 7.000 kg. 

Þú þarft að vera 18 ára með fullnaðarskírteini til að fá kerruréttindi (BE - Réttindi). 

Til að byrja ferlið, fyllir þú út umsókn (linkur hér að neðan), ferð til sýslumanns með umsókn, nefnir ökukennara og hefur því næst samband við mig. 

Verð og innifalið.

Kerruprófið kostar 87.500 kr. 

 

Innifalið í verði er notkun á bifreið og kerru í fjóra ökutíma, ásamt notkun á prófdegi hjá Frumherja. Ekki innifalið prófgjald hjá Frumherja og umsókn hjá sýslumanni. 

Í kennslutímum er farið yfir atriði sem eru til prófs við BE - réttindi. Þetta er akstur í almennri umferð, um keilubraut og þjálfun fyrir munnlegar spurningar. Ekkert bóklegt próf er tekið þegar sóst er eftir BE - réttindum. 

Sími: 855 0580

  • White Facebook Icon

læarakeyra á facebook

johannhilmar@lærakeyra.is

bottom of page